Um sveitina



Þessi mynd var tekin af lúðrasveitinni á æfingu í febrúar 2009, á 25 ára afmælisárinu.
Föngulegur hópur þó vanti nokkra meðlimi. Róbert Darling stjórnandi er fremstur frá hægri.
Ljósmynd: Davíð Þór Guðlaugsson.

Sögu Lúðrasveitar Þorlákshafnar má rekja aftur til ársins 1984. Þá komu nokkrir þorlákshafnískir hljóðfæraleikarar sér saman um að stofna lúðrasveit fyrir tilstilli Lions klúbbsins. Það þætti kannski einhverjum öðrum galin hugmynd í ekki stærra bæjarfélagi en þá var og er í sjálfu sér enn, en þarna er „persónuleika“ lúðrasveitarinnar best lýst; kraftur, þor og áræðni.

Róbert Darling var fyrsti stjórnandinn og hefur hann stjórnað sveitinni nánast óslitið síðan. Að auki eru tveir meðlimir sem alltaf hafa staðið vaktina en það eru þeir Hermann Jónsson básúnuleikari og Gestur Áskelsson saxófónleikari. Þeir eiga einnig skilið hrós fyrir mikla vinna og úthald. Ófáir harðfullorðnir meðlimir hafa verið með frá barnsaldri.

Æft er hvern fimmtudag og aka þó nokkrir á æfingar nánast hvernig sem viðrar frá sveitarfélögunum í kring og Reykjavíkursvæðinu.

Viðfangsefni Lúðrasveitarinnar hafa verið fjölbreytt í gegnum árin og sífellt eykst metnaðurinn. Sveitin hefur ekki einungis fengist við að spila hefðbundna lúðrasveitatónlist sem flestir kannast við í kringum hin ýmsu hátíðahöld, heldur hafa þekktir poppslagarar sem og sígild stórverk fengið að njóta sín í auknum mæli. Má einkum upplifa þá spilamennsku á árlegum jóla- og vortónleikum sveitarinnar.



Fyrstu árin

Um árabil stóð lúðrasveitin fyrir eigin hátíðarhöldum. Hátíðin var kölluð Þorláksvaka og var gríðarlega vinsæl. Þá hafa reglulega verið haldin fjölsótt bingó. Svo hafa meðlimir farið í æfingarferðalög, bæði innanlands og utan auk þess að sækja fjölmörg Landsmót íslenskra lúðrasveita sem ávallt reynast hin besta skemmtun.

Í september 2008 hélt lúðrasveitin Landsmót Sambands íslenskra lúðrasveita. Mótið var haldið hér í Þorlákshöfn og tókst í alla staði mjög vel. Um 100 hljóðfæraleikarar mættu til leiks víðsvegar að af landinu úr 7 lúðrasveitum og var ekkert slegið af, spilað bæði dag og nótt!

Félagar í Lúðrasveit Þorlákshafnar eru um 40 talsins (mars 2011). Mikil fjölgun hefur orðið á ný í sveitinni undanfarin ár og hefur tekist vel að fá gamla meðlimi til að dusta rykið af hljóðfærum sínum og spila með. Þá hafa þó nokkrir ungir og efnilegir hljófæraleikarar hér í Þorlákshöfn bæst í hópinn.

Það er ekki sjálfgefið að halda úti lúðrasveit og það gæðabandi sem þessu í jafn fámennu byggðarlagi og Þorlákshöfn en Róbert Darling hefur drifið starfið áfram af miklum krafti og á hann heiður skilinn fyrir það.


Lúðrasveit Þorlákshafnar prúðbúin á Nýarstónleikum 2. janúar 2011